Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 23. september 2018 19:37
Ívan Guðjón Baldursson
Unai Emery: Cech hélt okkur inni
Mynd: Getty Images
Unai Emery, Alexandre Lacazette og Pierre-Emerick Aubameyang þökkuðu allir Petr Cech fyrir frábæra frammistöðu sína eftir 2-0 sigur Arsenal gegn Everton í dag.

Cech gerði ótrúlega vel þegar hann bjargaði sínum mönnum nokkrum sinnum í leiknum og var valinn sem maður leiksins af Sky Sports sem gaf honum 9 af 10 mögulegum í einkunn.

„Við erum ánægðir með mikilvæg stig en við vorum ekki nógu góðir í fyrri hálfleik. Við stjórnuðum leiknum ekki eins og við vildum en sem betur fer hélt Petr Cech okkur í leiknum," sagði Emery.

„Við stjórnuðum leiknum betur í síðari hálfleik og fengum færri færi á okkur. Torreira gerði mjög vel í seinni hálfleik þrátt fyrir að vera að spila á gulu spjaldi."

Lacazette kom Arsenal yfir snemma í síðari hálfleik og gerði Aubameyang út um leikinn með rangstöðumarki skömmu síðar, sem Emery segist ekki vera búinn að skoða.

„Petr Cech bjargaði okkur svona 20 sinnum í leiknum," sagði Aubameyang áður en Lacazette bætti við „Takk Petr þú bjargaðir deginum."

Petr Cech var einnig tekinn í örstutt viðtal að leikslokum. „Það er frábært að vera með fjóra sigra í röð, þessi var sérstaklega erfiður að sækja. Everton skapaði mikið í fyrri hálfleik og ég hafði nóg að gera. Ég varð að halda liðinu inni í leiknum og gerði það."
Athugasemdir
banner
banner
banner