Lucas Digne, vinstri bakvörður Everton og franska landsliðsins, er hæstánægður með knattspyrnustjóra sinn Marco Silva.
Silva hefur legið undir gagnrýni í byrjun tímabils en Everton var í fallsæti fyrir síðustu helgi.
Silva stýrði Everton hins vegar til 2-0 sigurs gegn West Ham á laugardag við mikla ánægju Digne.
Silva hefur legið undir gagnrýni í byrjun tímabils en Everton var í fallsæti fyrir síðustu helgi.
Silva stýrði Everton hins vegar til 2-0 sigurs gegn West Ham á laugardag við mikla ánægju Digne.
„Hann blés leikmönnum sjálfstraust í brjóst og gaf mjög góðar ráðleggingar," sagði Digne.
„Að mínu mati er hann einn besti þjálfari sem ég hef verið með og hann getur orðið einn sá besti í heimi."
Athugasemdir