Paul Pogba og David De Gea tóku ekki þátt í æfingu Manchester United í morgun en liðið mætir Partizan í Belgrad í Evrópudeildinni á morgun.
United sýndi fína frammistöðu í 1-1 jafntefli gegn Liverpool á Old Trafford á sunnudaginn.
United sýndi fína frammistöðu í 1-1 jafntefli gegn Liverpool á Old Trafford á sunnudaginn.
Jesse Lingard æfði með United í morgun og táningarnir Ethan Laird, Brandon Williams og James Garner voru allir með.
Pogba er enn að glíma við meiðsli en hann var í Dubai í liðnum landsleikjaglugga.
De Gea hefur einnig verið að glíma við meiðsli en það kom á óvart að hann var í byrjunarliðinu gegn Liverpool. Líklegt er að Spánverjinn verði hvíldur á morgun.
Luke Shaw, Nemanja Matic, Axel Tuanzebe, Diogo Dalot, Eric Bailly og Timothy Fosu-Mensah voru einnig fjarri góðu gamni á æfingunni.
Athugasemdir