Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. október 2019 11:46
Elvar Geir Magnússon
River Plate í úrslit Copa Libertadores
Gleði hjá stuðningsmönnum River Plate.
Gleði hjá stuðningsmönnum River Plate.
Mynd: Getty Images
River Plate á möguleika á að vinna Copa Libertadores, Meistaradeildar Suður-Ameríku, annað árið í röð. Argentínska liðið vann erkifjendur sína Boca Juniors í undanúrslitaeinvígi.

Boca vann seinni viðureignina 1-0 með marki Jan Hurtado seint í leiknum en River Plate kemst áfram í úrslitin með 2-0 sigri úr fyrri leiknum.

„Þetta var stríð," sagði Exequiel Palacios, miðjumaður River, eftir leikinn. „Þetta var grannaslagur og við gáfum allt í þetta."

River mun mæta Flamengo eða Gremio í úrslitum en brasilísku liðin eigast við í seinni undanúrslitaleik sínum í kvöld. Fyrri leikurinn endaði 1-1.

Úrslitaleikurinn verður spilaður í Santiago í Síle þann 23. nóvember.

Athugasemdir
banner
banner
banner