Tottenham skoraði fimm í öruggum sigri gegn Rauðu stjörnunni í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.
Rauða stjarnan mátti ekki selja stuðningsmönnum sínum miða á leikinn vegna banns frá UEFA en Serbarnir dóu ekki ráðalausir.
Stór hópur stuðningsmanna keypti sér miða á svæði heimamanna og studdi sína menn þaðan, stuðningsmönnum Tottenham til gremju.
UEFA er með málið til skoðunar þar sem stuðningsmenn Rauðu stjörnunnar máttu ekki mæta á völlinn. Þeir voru um 200 talsins og því of stór hópur til að henda út án þess að skapa hættu fyrir aðra.
Lögregla var á svæðinu og fylgdist grannt með hegðun gestanna.
So, a really quite large contingent of Red Star fans, who are banned from this game, have made their way into one of the home ends of the Tottenham stadium pic.twitter.com/TbIpATIN18
— Luke Bailey (@imbadatlife) October 22, 2019
Athugasemdir