Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 23. nóvember 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Gerrard ætlar að fá einn leikmann frá Rangers
Steven Gerrard
Steven Gerrard
Mynd: EPA
Steven Gerrard, stjóri Aston Villa á Englandi, vonast til þess að fá Borna Barisic, vinstri bakvörð Rangers, í janúarglugganum. Daily Record greinir frá.

Barisic var mikilvægur hlekkur í liði Rangers er Gerrard stýrði liðinu til sigurs í skosku deildinni á síðustu leiktíð.

Þessi 28 ára gamli vinstri bakvörður er leikmaður sem Gerrard horfir til en Englendingurinn hætti með Rangers á dögunum og tók við Aston Villa.

Matt Targett byrjaði í 2-0 sigri Villa á Brighton um helgina en Gerrard vill styrkja þá stöðu frekar.

Talið er að Villa þyrfti að punga út 8 milljónum punda til að fá Barisic frá Rangers en hann hefur einnig verið orðaður við Roma.
Athugasemdir
banner
banner
banner