Antonio Conte er ekki ánægður með að hafa aðeins fengið stig eftir sannfærandi frammistöðu á Goodison Park.
Chelsea átti 26 skot á móti 4 hjá Everton en einhvern veginn fór boltinn ekki í netið. Conte telur heimamenn ekki hafa átt skilið að fá stig úr leiknum.
Chelsea átti 26 skot á móti 4 hjá Everton en einhvern veginn fór boltinn ekki í netið. Conte telur heimamenn ekki hafa átt skilið að fá stig úr leiknum.
„Við stjórnuðum leiknum og fengum urmul marktækifæra. Þetta eru ósanngjörn úrslit," sagði Conte.
„Everton á hrós skilið fyrir hetjulega baráttu en þeir eiga stigið ekki skilið, við áttum að vinna. Þeirra besti maður var líklega Jordan Pickford.
„Það er ekki auðvelt að koma hingað og taka stjórn á leiknum. Við vorum bara óheppnir að vinna ekki, þetta er partur af leiknum."
Athugasemdir