Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 23. desember 2020 20:00
Aksentije Milisic
Bruno vill enda tímabilið með fleiri mörk og stoðsendingar heldur en spilaða leiki
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes, leikmaður Manchester United, segir að hann vilji skora og leggja upp fleiri mörk heldur en spilaða leiki hjá sér í ensku úrvalsdeildinni.

Bruno hefur verið magnaður frá því hann kom til United í janúar á þessu ári. Hann hefur skorað 25 mörk og lagt upp 15 í 42 leikjum fyrir liðið.

Hann var í viðtali við MUTV fyrir leikinn gegn Everton í kvöld og þar mátti heyra að hann sé með alvöru metnað og er ólmur í að gera enn betur.

„Eins og ég hef sagt áður, þetta er auðveldara í Manchester United því þú spilar með mörgum góðum leikmönnum," sagði Bruno.

„Þetta verður erfiðara eftir því sem leikirnir líða því andstæðingarnir munu þekkja mig betur. Ég er mjög sáttur með tölfræðina mína hingað til."

Bruno kom til United fyrir tæpar 50 milljónir punda og hefur eins og áður segir, slegið í gegn.

„Ég vil enda tímabilið í ensku úrvalsdeildinni á því að skora og leggja upp fleiri mörk samanlagt heldur en spilaða leiki."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner