Búið er að draga í undanúrslit deildabikarsins en það var gert strax eftir leik Everton og Manchester United í kvöld.
Ekki verður spilað heima og að heiman eins og síðustu ár vegna kórónuveiru faraldursins. Undanúrslitin verða spiluð 5 og 6 janúar næstkomandi.
Það verður Manchester slagur í undanúrslitum en þá mætast United og City á Old Trafford.
Í hinni viðureigninni fær Tottenham heimaleik gegn Brentford.
Manchester City hefur unnið titilinn þrjú ár í röð og fjórum sinnum á síðustu fimm árum.
Undanúrslit:
Manchester United-Manchester City
Tottenham-Brentford
Athugasemdir