Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 23. desember 2020 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Diego Costa á förum frá Atletico
Costa er á förum.
Costa er á förum.
Mynd: Getty Images
Diego Costa er á förum frá Atletico Madrid annað hvort í janúar eða næsta sumar þegar samningur hans við félagið rennur út.

Þetta segir ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano sem er yfirleitt með allt á hreinu.

Hinn 32 ára gamli Costa mun yfirgefa Atletico árið 2021 í þriðja sinn. Atletico er víst tilbúið að selja hann í janúar þó félagið sé að berjast um spænska meistaratitilinn.

Ef ekkert ásættanlegt tilboð kemur í hann janúar, þá mun hann fara næsta sumar á frjálsri sölu.

Costa hefur átt í vandræðum með meiðsli á þessu tímabili og aðeins spilað 204 mínútur. Í heildina hefur Costa skorað 83 mörk í 215 leikjum fyrir Atletico, sem er þessa stundina á toppi La Liga.
Athugasemdir
banner
banner