Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 23. desember 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Everton mætir Man Utd í 8-liða úrslitum
Mynd: Getty Images
8-liða úrslit deildabikarsins ráðast í kvöld þegar tveir áhugaverðir leikir fara fram.

Tottenham heimsækir Championship-félag Stoke City í fyrri leik kvöldsins áður en Everton mætir Manchester United.

Stoke er á fínu skriði í Championship deildinni en er þó langt frá gæðum Tottenham sem er í toppbaráttu úrvalsdeildarinnar.

Gylfi Þór Sigurðsson gæti komið við sögu er Everton mætir Man Utd í hörkuleik.

Liðin eru á svipuðu reiki í Evrópubaráttu úrvalsdeildarinnar en Man Utd hafði betur er liðin mættust á Goodison Park í nóvember.

Manchester City og Brentford eru komin í undanúrslitin eftir sigra gegn Arsenal og Newcastle í gær.

Leikir kvöldsins:
17:30 Stoke - Tottenham (Stöð 2 Sport 2)
20:00 Everton - Man Utd (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner
banner