banner
   mið 23. desember 2020 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í Barcelona til að ræða um Mustafi
Er Mustafi loksins á förum frá Arsenal.
Er Mustafi loksins á förum frá Arsenal.
Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn Shkodran Mustafi gæti verið á leið til Barcelona í janúarglugganum.

Barcelona hefur verið í vandræðum með miðvarðarstöðuna hjá sér á tímabilinu vegna meiðsla Gerard Pique.

Mustafi er aðeins búinn að spila tvo deildarleiki fyrir Arsenal en hann hefur ekki reynst félaginu vel frá skiptum sínum frá Valencia 2016. Samningur hans rennur út næsta sumar og Arsenal gæti freistast til að losa hann ódýrt í janúar.

Umboðsmaður Mustafi hefur staðfest að hann hafi rætt við Barcelona um skjólstæðing sinn.

„Ég er í Barcelona út af Shkodran Mustafi," sagði umboðsmaðurinn Emre Öztürk við SPOX.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner