Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 23. desember 2020 21:30
Aksentije Milisic
Martinelli fór meiddur af velli í gær - „Líður vel og klár í slaginn á ný"
Mynd: Getty Images
Gabriel Martinelli, vonarstjarna Arsenal, segir að honum líði vel og að hann sé klár í að spila aftur. Martinelli meiddist í gær í tapleiknu gegn Manchester City í bikarnum en nú er ljóst að meiðslin eru ekki alvarleg.

Martinelli spilaði sinn fyrsta leik í byrjunarliðinu síðan í mars mánuði en þessi Brasilíumaður þurfti að fara útaf í gær eftir samstuð við markvörð City.

Martinelli setti inn færslu á Instagram eftir leikinn þar sem hann skrifaði að honum líður vel og að hann sé klár í slaginn á ný.

„Hann fékk slæmt högg á legginn og það byrjaði að bólgna upp, þess vegna gat hann ekki haldið áfram. Þetta er ekkert alvarlegt," sagði Arteta eftir leikinn í gær.

„Í hálfleiknum var hann ólmur í að halda áfram að spila, þetta var ekki opið sár. En verkurinn var það mikill að eina í stöðunni var að taka hann útaf."

Arsenal mætir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn en liðið þarf nauðsynlega á sigri að halda.

Athugasemdir
banner
banner