Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 23. desember 2020 23:30
Aksentije Milisic
Milan jafnar met Barcelona
Mynd: Getty Images
AC Milan vann öflugan sigur á Lazio í kvöld þar sem Theo Hernandez gerði sigurmarkið í uppbótartíma.

AC Milan er taplaust á toppi deildarinnar eftir fjórtán umferðir og hefur liðið núna ekki tapað deildarleik í 26 leikjum í röð. Magnaður árangur.

Milan er fyrsta liðið sem skorar að minnsta kosti tvö mörk í 16 deildarleikjum í röð á einu almanaksári. Síðasta liðið sem gerði það var Barcelona árið 1948.

Magnað ár hjá Milan sem er á toppi deildarinnar á Ítalíu þegar jólin ganga í garð.


Athugasemdir
banner
banner
banner