„Þú veist aldrei hvað gerist í fótbolta, fyrsta markið breytir öllu. Svo lengi sem við vorum inn í leiknum þá vissi ég að varamennirnir mínir gætu komið inn og breytt leiknum," sagði Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, eftir sigur á Everton í deildabikarnum í kvöld.
Allt stefni í vítaspyrnukeppni en á 88. mínútu skoraði Edinson Cavani smekklegt mark og kom United í forystu. Anthony Martial, sem kom inn á sem varamaður og lagði upp markið hjá Cavani, gulltryggði síðan sigurinn með lokaskoti leiksins.
„Við byrjuðum leikinn mjög vel og áttum að vera 2 eða 3-0 yfir. Þeir voru öflugir undir lok fyrri hálfleiks og við spiluðum síðan vel síðustu 20 mínúturnar," sagði Ole.
„Við erum með hraða og maður er alltaf bjartsýnn á það að það muni opnast svæði fyrir okkur. Cavani átti að skora þrjú í fyrri hálfleik en hann er frábær framherji, hreyfingarnar, gæði og svo var markið frábært."
Cavani og Yerry Mina lenti saman í byrjun síðari hálfleiks þar sem Cavani virtist taka hann hálstaki. Solskjær sagði að það verðskuldaði ekki rautt spjald.
„Aldrei rautt. Þetta eru tveir menn frá Suður-Ameríku að takast á. Þeir hafa mæst áður og þetta var alvöru fótboltaleikur. Leikur með áhorfendur, tæklingum og færum. Ég naut þess að horfa á leikinn."
United mætir City á Old Trafford í undanúrslitum.
Athugasemdir