Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 23. desember 2020 13:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ótrúleg tölfræði Inaki Williams - Missir ekki úr leik
Inaki Williams.
Inaki Williams.
Mynd: Getty Images
Inaki Williams, leikmaður Athletic Bilbao, missir ekki úr leik fyrir lið sitt í spænsku úrvalsdeildinni.

Williams er 26 ára gamall eldsnöggur framherji sem er uppalinn hjá Bilbao.

Frá tímabilinu 2016/17 hefur hann spilað alla 38 leiki Athletic Bilbao á hverju tímabili í spænsku úrvalsdeildinni. Hann hefur ekki byrjað þá alla, en hann hefur spilað í þeim öllum.

Hann spilaði 78 mínútur í gær og skoraði þegar Athletic Bilbao gerði 1-1 jafntefli við Villarreal á útivelli.

Með því að spila í leiknum tók hann fram úr Real Madrid goðsögninni Alfred Di Stefano yfir flesta leiki spilaða í röð í spænsku úrvalsdeildinni. Williams er núna búinn að spila 172 leiki í röð - án þess að missa úr einn leik - í La Liga. Metið er 202 leikir í röð og gæti Williams bætt það á næsta tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner