Mesut Özil, leikmaður Arsenal, leyfði fólki að spyrja sig spurninga á Twitter í kvöld og fékk hann þær þó nokkrar.
Notandi að nafni Andrei ákvað að spyrja Özil hver væri vanmetnasti leikmaðurinn sem hefur spilað með Özil á hans ferli.
Özil nefnir þar Matteo Guendouzi leikmann Arsenal. Özil segir að hann muni verða frábær leikmaður einn daginn.
Guendouzi er á láni hjá Hertha Berlin en Mikel Arteta, stjóri Arsenal, virðist ekki hafa miklar mætur á leikmanninum.
Guendouzi hefur spilað 57 leiki fyrir Arsenal en hann kom til liðsins árið 2018.
❤️@MatteoGuendouzi - I'm sure he will be a big football player one day! https://t.co/inK6WNRVUh
— Mesut Özil (@MesutOzil1088) December 23, 2020
Athugasemdir