Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen fengu í gær stöðuhækkun úr U21 landsliðinu í A-landsliðið. Þeir verða þjálfarar A-landsliðs karla næstu tvö árin.
Eiður Smári er einn besti fótboltamaður sem við Íslendingar höfum átt, ef ekki sá besti. Hann er markahæstur í sögu landsliðsins ásamt Kolbeini Sigþórssyni með 26 mörk.
Eiður spilaði með félögum á borð við Chelsea og Barcelona á farsælum leikmannaferli. Eitt af því síðasta sem hann gerði á ferli sínum var að fara með A-landsliðinu á EM 2016.
Hann byrjaði að þjálfa fyrir í fyrra og hefur hann verið aðstoðarþjálfari U21 landsliðsins ásamt því að þjálfa FH í Pepsi Max-deildinni.
Í gær var hann svo ráðinn aðstoðarþjálfari A-landsliðsins. Hann hefur fengið margar hamingjuóskir á samfélagsmiðlum. John Terry, fyrrum fyrirliði Chelsea og núverandi aðstoðarþjálfari Aston Villa, er á meðal þeirra sem hafa óskað Eiði til hamingju.
„Gangi þér vel," skrifaði Terry við færslu Eiðs á Instagram en færsluna má sjá hér að neðan.
Athugasemdir