Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. mars 2019 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikir: Þór sigraði Magna - Jafntefli hjá Fram og Víking R.
Jónas skoraði eitt mark í gær.
Jónas skoraði eitt mark í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórsarar mættu Magna frá Grenivík í æfingaleik í Boganum í gær.

Leikurinn endaði með 5-2 sigri Þórsara. Mörk Þórsara skoruðu þeir Aðalgeir Axelsson, Alvaro Montejo, Jónas Björgvin Sigurbergsson, Hermann Helgi Rúnarsson og Sveinn Elías Jónsson.

Mörk Magna skoruðu þeir Patrekur Hafliði Búason og Bergvin Jóhannsson.

Fram og Víkingur mættust einnig í æfingaleik í gær. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli. Mark Frammara skoraði Fred Saraiva beint úr aukaspyrnu.

Þór, Magni og Fram leika öll í Inkasso deildinni í sumar. Þórsarar fá Aftureldingu í heimsókn í sínum fyrsta leik 4. maí. Á sama tíma fer Magni í heimsókn á Leiknisvöllinn. Fram heimsækir Keflavík daginn eftir.

Víkingur R. mætir Val í opnunarleik Pepsi-Max deildarinnar.

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir
banner
banner
banner