Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. mars 2019 20:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Berger: Liverpool getur klárlega unnið deildina og Meistaradeildina
Patrik Berger lék með Liverpool á árunum 1996-2003.
Patrik Berger lék með Liverpool á árunum 1996-2003.
Mynd: Getty Images
Patrik Berger sem lék með Liverpool á árunum 1996-2003 hefur mikla trú á núverandi Liverpool liði og segir þá mjög líklega til að vinna bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina.

„Ég held að þeir geti klárlega unnið deildina og Meistaradeildina líka, þeir eru í frábærri stöðu í báðum þessum keppnum. Porto var mjög góður dráttur fyrir þá, þetta gæti þó orðið erfitt en ég held að þeir muni hafa betur í þessu einvígi og fara í undanúrslit Meistaradeildarinnar."

„Í deildinni verða þeir að fara inn í alla þá leiki sem eftir eru eins og þeir séu að fara spila úrslitaleik, þeir þurfa án efa að vinna alla leikina sem eftir eru ætli þeir sér að verða enskir meistarar."

„Ég get alveg séð fyrir mér að þeir muni vinna tvöfalt á þessu tímabili, ég sé enga ástæðu til að efast um það," sagði Berger að lokum.

Athugasemdir
banner
banner
banner