„Hérna var maður fyrir næstum því þúsund dögum," segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, yfirmaður á íþróttadeild Sýnar. Fótbolti.net spjallaði við Eirík á þjóðarleikvangi Frakka, Stade de France.
Eiríkur rifjaði upp minningar frá vellinum og var einnig spurður út í þær fréttir að Jóhann Berg Guðmundsson spilar ekki á morgun vegna meiðsla.
Eiríkur rifjaði upp minningar frá vellinum og var einnig spurður út í þær fréttir að Jóhann Berg Guðmundsson spilar ekki á morgun vegna meiðsla.
„Við erum því miður á þeim stað með landsliðinu okkar að við megum ekki við miklum skakkaföllum. Sérstaklega þegar um er að ræða lykilmenn í ensku úrvalsdeildinni. Það eru fáir slíkir leikmenn sem við eigum. Þetta er áfall. Jói er frábær leikmaður sem er á hátindi ferilsins, það er mjög svekkjandi fyrir hann og okkur að hann missi af þessum leik. Við verðum að trúa því að sá sem kemur inn muni leysa sitt hlutverk með sóma," segir Eiríkur.
Hann er bjartsýnn fyrir leikinn á morgun og spáir 1-1 jafntefli. Birkir Bjarnason skorar markið í spá Eiríks.
„Hann er búinn að skora í þremur leikjum í röð gegn Frakklandi og hann heldur því áfram."
Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir