Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 24. mars 2019 20:59
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Lengjubikar kvenna C-deild: Hamrarnir og Völsungur með stórsigra
Völsungur sigraði Sindra/Einherja 0-4 í dag.
Völsungur sigraði Sindra/Einherja 0-4 í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Tveir leikir fóru fram í dag í Lengjubikar kvenna, annar leikurinn fór fram í Boganum og hinn leikurinn fór fram í Fjarðabyggðahöllinni.

Í Boganum mættust Hamrarnir og Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir, þær fyrrnefndu sigruðu þar örugglega 4-0. Aldís María Jóhannsdóttir skoraði þrennu í fyrri hálfleik og Rakel Sjöfn Stefánsdóttir bætti við fjórða markinu.

Sindri/Einherji og Völsungur mættust í Fjarðabyggðahöllinni, þar var niðurstaðan öruggur sigur Völsungs, 0-4. Hulda Ösp Ágústsdóttir skoraði eina mark fyrri hálfleiks, hún bætti svo við öðru marki sínu þegar síðari hálfleik var tólf mínútna gamall.

Arnhildur Ingvarsdóttir skoraði þriðja markið og Krista Eik Harðardóttir skoraði fjórða og síðasta mark leiksins.

Hamrarnir 4-0 Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir
1-0 Aldís María Jóhannsdóttir ('25)
2-0 Aldís María Jóhannsdóttir ('32)
3-0 Aldís María Jóhannsdóttir ('41)
4-0 Rakel Sjöfn Stefánsdóttir ('52)

Sindri/Einherji 0-4 Völsungur
0-1 Hulda Ösp Ágústsdóttir ('21)
0-2 Hulda Ösp Ágústsdóttir ('57)
0-3 Arnhildur Ingvarsdóttir ('61)
0-4 Krista Eik Harðardóttir ('90)

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner