Andrés ‘Manga’ Escobar er að fara skrifa undir sex mánaða samning við Leikni Reykjavík og mun hann leika með liðinu í Pepsi Max deildinni í sumar.
Manga er reynslumikill 29 ára gamall leikmaður og er fæddur í Kólumbíu en hann á leiki að baki fyrir U20 ára landslið Kólumbíu.
Manga hefur víða komið við á sínum ferli en hann hóf feril sinn í Deportivo Cali áður en Dynamo Kyiv frá Úkraínu keypti leikmanninn.
Leikmaðurinn spilaði hins vegar bara einn leik fyrir Kyiv á sex árum en hann fór á láni til þó nokkurra liða. Hann hefur lítið spilað á síðustu þremur árum en hann er staðráðinn í því að sýna aftur hvað hann getur hjá Leikni.
Incredible signing for @LeiknirRvkFC. https://t.co/fNW82SusfA
— Lucas Arnold (@FotboltiLucas) March 24, 2021
Athugasemdir