Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 24. mars 2021 07:30
Victor Pálsson
Deschamps ekki pirraður yfir spilatíma Kante
Mynd: Getty Images
Það pirrar Didier Deschamps, landsliðsþjálfara Frakklands, ekki neitt að N'Golo Kante byrji ekki alla leiki Chelsea undir Thomas Tuchel.

Tuchel breytir Chelsea-liðinu nánast í hverjum einasta leik og hefur Kante verið á bekknum í nokkrum viðureignum.

Kante er nú með franska landsliðinu sem spilar við Úkraínu í undankeppni HM í kvöld.

„Hann er vanur því að spila mjög ákaft og hann sparar sig ekki. Ég er ekki óánægður þegar hann byrjar ekki hvern einasta leik," sagði Deschamps.

„Þetta snýst allt um samskipti. Leikmenn geta komið hingað frá félagsliðinu og ekki verið í besta standinu en snúa aftur í betra standi."

„Andstæðan er líka möguleiki.Kante sparar sig ekki en þannig er hann, ég mun ekki breyta því."
Athugasemdir
banner
banner
banner