EM U21 hófst í dag þegar fjórir leikir fóru fram í tveimur riðlum.
Í B-riðli mættust Slóvenía og Spánn og í hinum leiknum mættust Tékkland og Ítalía. Spánverjar áttu ekki í neinum vandræðum með Slóveníu og unnu leikinn 3-0. Javier Puado, Gonzalo Villar og Juan Miranda skoruðu mörkin.
Ítalíu tókst ekki að vinna Tékkland og lauk leiknum með 1-1 jafntefli. Gianluca Scamacca kom Ítalíu yfir en Tékkarnir jöfnuðu úr vítaspyrnu og jafntefli því niðurstaðan.
Í A-riðli voru einnig tveir leikir. Þjóðverjar unnu öruggan 3-0 sigur á Ungverjalandi þar sem Bote Baku gerði tvennu. Þá gerðu Rúmenía og Holland 1-1 jafntefli.
Ísland mætir til leiks á morgun klukkan 17 og mætir Rússum.
Athugasemdir