Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 24. mars 2021 21:00
Aksentije Milisic
Ince: Man Utd ætti að reyna við Aguero
Mynd: Getty Images
Fyrrverandi leikmaður Manchester United, Paul Ince, segir að sitt gamla félag ætti að skoða það alvarlega að fá Sergio Aguero til liðsins.

Samningur Aguero við Manchester City rennur út í sumar og því fer hann á frjálsri sölu frá liðinu. Aguero er sagður vilja spila áfram í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur verið orðaður við Chelsea og Barcelona.

Ince segir að Aguero myndi styrkja lið Man Utd mikið og að félagið ætti að láta til skara skríða.

„Af hverju reynir United ekki að fá Aguero? Ef hann vill vera áfram á Englandi og hann býr í Manchester. Það væri ekki slæmt fyrir þá að reyna krækja í hann," sagði Ince.

„Hver veit? Þetta gæti gerst. Það er ekki eins og að Harry Kane og Erling Haaland séu einu svörin fyrir United."

Athugasemdir
banner
banner
banner