Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 24. mars 2021 21:55
Aksentije Milisic
Klich með kóróna veiruna - Missir af leiknum gegn Ungverjalandi
Mynd: Getty Images
Miðjumaður Leeds United, Mateusz Klich, hefur greinst með kóróna veiruna og ljóst er að hann mun missa af leik Póllands og Ungverjalands á morgun í undankeppni HM.

Þá er ljóst að hann gæti einnig misst af leikjum gegn Andorra og Englandi í þessum glugga.

Klich líður vel og er hann ekki með nein einkenni. Jakub Kwiatkowski, fjölmiðlafulltrúi pólska landsliðsins, skrifaði um málið á Twitter.

„Pólska landsliðið fékk niðurstöður úr SARS-Cov-2 prófsins í morgun."

„Því miður, í tilfelli Mateusz Klich, er niðurstaðan jákvæð. Leikmaðurinn hefur það gott og sýnir engin sjúkdómseinkenni en hann fer ekki með til Búdapest. Í dag var prófið endurtekið."
Athugasemdir
banner
banner
banner