Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 24. mars 2021 17:15
Arnar Laufdal Arnarsson
Líklegt byrjunarlið Rússlands gegn Íslandi
Öflugur framherji CSKA
Hörður Björgvin og Arnór Sigurðsson ásamt Fedor Chalov
Hörður Björgvin og Arnór Sigurðsson ásamt Fedor Chalov
Mynd: Getty Images
Íslenska U21 árs liðið mætir Rússlandi klukkan 17:00 að íslenskum tíma á morgun. Leikurinn er fyrsti leikur íslenska liðsins í lokakeppni Evrópmótsins í Ungverjalandi.

Leikurinn fer fram á Alcufer Stadion í Györ.

Rússland spilar mjög líkan fótbolta og A-landslið okkar Íslendinga undir Lars Lagerback, Heimis Hallgrímssonar og Erik Hamren frá 2012-2020. Liðið spilar 4-4-2 og skora flest mörkin sín úr fyrirgjöfum og föstum leikatriðum og eru Rússarnir mjög líkamlega sterkir.

Ivan Oblyakov er fyrirliði liðsins sem spilar á miðri miðjunni hjá CSKA Moskvu. Fæddur 1998 og hefur spilað 27 leiki fyrir U-21 árs liðið og skorað 6 mörk. Leikið 20 leiki fyrir CSKA á þessu tímabili, skorað 1 og lagt upp 2.

Fedor Chalov framherji CSKA Moskvu er stjarna liðsins sem hefur skorað 10 mörk í 20 leikjum fyrir U-21 árs liðið. Verður áhugavert að sjá hvernig varnarmenn okkar glíma við þennan öfluga framherja.

Þetta er líklegt byrjunarlið að mati fréttaritara.


Lestu meira um rússneska liðið:
Andstæðingar U21 - Rússar læstu vörninni
Athugasemdir
banner
banner
banner