Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 24. mars 2021 19:55
Aksentije Milisic
Meistaradeild kvenna: Bayern setti þrjú á Rosengard - Lyon vann
Glódís er lykilleikmaður hjá Rosengard.
Glódís er lykilleikmaður hjá Rosengard.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Átta liða úrslit í Meistaradeild kvenna hófust í dag en þá voru spilaðir fyrri leikirnir í einvígjunum.

Það var Íslendingaslagur í Þýskalandi þar sem Bayern Munchen og Rosengard mættust. Stelpurnar í Bayern lentu ekki í neinum vandræðum og unnu öruggan 3-0 sigur.

Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn fyrir gestina á meðan Karolína Lea Vilhjálmsdóttir sat á varamannabekknum hjá Bayern.

PSG og Lyon áttust þá við í Frakklandi og var það Lyon sem var 0-1 útisigur. Wendie Renard gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu en Sara Björk Gunnarsdóttir sat allan tímann á bekknum hjá Lyon.

Þá vann Chelsea lið Wolfsburg 2-1 og Barcelona fór létt með Manchester City. Þeim leik lauk með 3-0 sigri Spánverjana.
Athugasemdir
banner
banner
banner