Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 24. mars 2021 23:30
Aksentije Milisic
Ótrúlegt gengi Belgíu á heimavelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Belgía mætti Wales í undankeppni HM í kvöld og unnu heimamenn sannfærandi 3-1 sigur.

Kevin de Bruyne, Thorgan Hazard og Romelu Lukaku skoruðu fyrir Belgíu en Wales komst yfir í leiknum. Sigurinn var hins vegar ekki í hættu og síst of stór.

Belgía hefur verið óstöðvandi á heimavelli sínum í forkeppnum fyrir HM og EM á síðustu árum.

Belgarnir hafa ekki tapað leik á heimavelli í undankeppni EM eða HM síðan í september árið 2010. Ekki nema tíu og hálft ár síðan.

Liðið á annan heimaleik fyrir höndum þann 30. mars þegar Hvíta-Rússland mætir í heimsókn.


Athugasemdir
banner
banner
banner