Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 24. mars 2021 16:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Györ, Ungverjaland
„Patrik svoleiðis dúndraði Kolbein Finnsson niður"
Icelandair
Patrik Sigurður
Patrik Sigurður
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fréttaritara barst ábending fyrir viðtalið við Patrik Sigurð Gunnarsson í gær. Óskað var eftir því að Patrik yrði spurður út í það hvort hann væri mikið í því að tækla menn í uppspili á æfingum.

„Haha nei nei, ég spila oft framarlega sem markvörður og er tilbúinn að 'sweep-a'. Jú jú, það hefur alveg komið fyrir að maður hefur tekið menn niður á uppspilsæfingum en menn hlægja bara að því í dag," sagði Patrik í gær.

Jón Dagur Þorsteinsson, fyrirliði U21 liðsins, sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag. Hann var spurður hvort Patrik hefði dúndrað sig niður á æfingu hér í Ungverjalandi.

„Haha, nei. Þetta er gamalt atvik frá því árið 2019 þegar við vorum í uppspilsæfingu. Patrik svoleiðis dúndraði Kolbein [Birgi] Finnsson niður," sagði Jón Dagur hress.

Þeir Patrik og Jón Dagur eru ásamt U21 árs landsliðinu að undirbúa sig fyrir leik gegn Rússlandi á morgun. Leikurinn er fyrsti leikur liðsins í lokakeppni Evrópumótsins.


Kolbeinn Birgir
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner