mið 24. mars 2021 09:00
Elvar Geir Magnússon
Real íhugar að gera tilboð í Kane - Man Utd vill varnarmenn
Powerade
Guido Rodriguez er orðaður við Arsenal.
Guido Rodriguez er orðaður við Arsenal.
Mynd: Getty Images
Jules Kounde er á óskalista Manchester United.
Jules Kounde er á óskalista Manchester United.
Mynd: Getty Images
Pau Torres.
Pau Torres.
Mynd: Getty Images
Kane, Rodriguez, Kounde, Torres, Lloris, Maignan, Koulibaly og fleiri í slúðurpakka dagsins. BBC tók saman.

Arsenal undirbýr tilboð í argentínska varnartengiliðinn Guido Rodriguez (26) hjá Real Betis. (Mundo Deportivo)



Real Madrid íhugar að gera tilboð í Harry Kane (27), sóknarmann Tottenham og enska landsliðsins. (SER Deportivos)

Manchester City er í viðræðum við Fluminese um brasilíska framherjann Kayky (17) sem myndi kosta um 21,5 milljónir punda. (Sun)

Manchester United horfir til Jules Kounde (22) hjá Sevilla og Pau Torres (24) hjá Villarreal. Þessir tveir varnarmenn í La Liga ættu að vera á toppi óskalista United sem vill fá miðvörð inn í sumar. (90 min)

United gæti reynt að fá Hugo Lloris (34) til að koma í stað David de Gea en Tottenham hefur áhuga á franska markverðinum Mike Maignan (25). (L'Equipe)

Liverpool, Juventus og Roma fylgjast með þróun mála hjá varnarmanninum Nacho (31) hjá Real Madrid. Leikmaðurinn er að sigla inn í lokaár samnings síns. (AS)

Carlo Ancelotti, stjóri Everton, vill fá varnarmanninn Kalidou Koulibaly (29) frá Napoli. Ancelotti þjálfaði Koulibaly hjá ítalska félaginu. (TalkSport)

Cristiano Ronaldo (36) er klár í að yfirgefa Juventus ef Real Madrid gerir tilboð um að fá hann aftur. (Marca)

Svisslendingurinn Denis Zakaria (24) hjá Borussia Mönchengladbach hefur vakið áhuga Manchester City. City hefur áhuga á að fá miðjumanninn til að koma í stað Fernandinho í sumar. (Sky Sports)

Bayern München er í viðræðum við Lucas Vazquez (29) hjá Real Madrid en samningur hægri bakvarðarins rennur út í sumar. (AS)

Fernando Hierro vonar að spænski miðvörðurinn Sergio Ramos (34) skrifi undir nýjan samning við Real Madrid. (Marca)

AC Milan hefur áhuga á að kaupa varnarmanninn Fikayo Tomori (24) frá Chelsea. Enski varnarmaðurinn er á láni hjá ítalska félaginu. (Goal)

Burnley og Newcastle hafa áhuga á enska miðverðinum Kyle Bartley (29) en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við West Bromwich Albion. (Telegraph)
Athugasemdir
banner
banner
banner