Ousmane Dembele er að koma til baka eftir meiðsli sem að hann varð fyrir í síðasta mánuði.
Hann var í byrjunarliði Barcelona gegn Real Sociedad um helgina en eftir leikinn sagði Ernesto Valverde, stjóri Barcelona, að leikmaðurinn væri ekki sá sami eftir meiðslin.
„Hann er ekki klár, það sást í leiknum um helgina. Það mun taka hann nokkra leiki að komast í sitt gamla form en eins og hann er í dag þá er hann ekki sami leikmaður og hann var fyrir meiðslin.
Barcelona sigraði Alaves í gærkvöldi en Dembele spilaði klukkutíma í leiknum áður en að hann var tekinn útaf.
Barcelona leikur gegn Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en fyrri leikurinn fer fram á Camp Nou í næstu viku.
Athugasemdir