„Við erum í smá veseni með meiðsli," sagði Rúnar Kristinsson þjálfari KR við Fótbolta.net í dag en liðið hefur leik í Pepsi-deildinni á laugardaginn með stórleik gegn Stjörnunni.
„Skúli Jón er úti og við vitum ekki hversu lengi hann verður frá. Hann er í basli með höfuðið á sér eftir höfuðáverka," sagði Rúnar.
„Svo er Kennie Chopart og Kristinn Jónsson búnir að æfa með liðinu undanfarna daga en mjög ólíklegt að þeir verði klárir."
„Finnur Tómas, ungi strákurinn okkar sneri sig á ökkla í byrjun vikunnar og er tæpur fyrir helgina," hélt hann áfram.
„Það hafa verið mikil skakkaföll undanfarið en menn eru að skríða á lappir. Eftir fyrstu eða aðra umferðina verða allir klárir held ég."
Pepsi Max-deildin:
föstudagur 26. apríl
20:00 Valur-Víkingur R. (Origo völlurinn)
laugardagur 27. apríl
14:00 Grindavík-Breiðablik (Grindavíkurvöllur)
14:00 ÍBV-Fylkir (Hásteinsvöllur)
16:00 FH-HK (Kaplakrikavöllur)
16:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
20:00 Stjarnan-KR (Samsung völlurinn)
Smelltu hér til að hlusta á upphitunarþátt deildarinnar
Athugasemdir