Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 24. apríl 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Arsenal ætlar að kaupa Pablo Mari
Mynd: Arsenal
David Ornstein hjá The Athletic segir að Arsenal ætli að kaupa varnarmanninn Pablo Mari frá Flamengo á tíu milljónir punda í sumar.

Þessi 26 ára gamli leikmaður kom á láni í janúar og náði að spila einn leik í ensku úrvalsdeildinni og einn bikarleik áður en keppni var hætt vegna kórónaveirunnar.

Mari naði hins vegar að hrífa Mikel Arteta, stjóra Arsenal, það mikið að hann ætlar að kaupa leikmanninn
.
Arteta vill hafa örvfættan miðvörð innan sinna raða á næsta tímabili og telur að þar sé Mari rétti leikmaðurinn.

Mari var á sínum tíma á mála hjá Manchester City en hann spilaði engan leik þar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner