fös 24. apríl 2020 11:11
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Hvernig fótbolta vill Atli Sveinn spila?
Atli Sveinn Þórarinsson.
Atli Sveinn Þórarinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Atli, Ólafur Ingi Skúlason og Ólafur Stígsson.
Atli, Ólafur Ingi Skúlason og Ólafur Stígsson.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Ég þekki Atla Svein ekkert sérstaklega. Frábær náungi en hann hefur aldrei virkað á mig sem maður sem er með miklar pælingar um fótbolta," sagði sparkspekingurinn Hjörvar Hafliðason í umræðuþætti í vikunni.

Hann var þar að tala um Atla Svein Þórarinsson, annan aðalþjálfara Fylkis, en Árbæjarliðið var til umræðu. Atli tók við þjálfun Fylkis eftir síðasta tímabil.

Í þættinum var velt því fyrir sér hvernig fótbolta Atli vildi spila.

Atli fékk þessa spurningu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 þar sem hann var gestur í janúar.

„Stutta svarið er að við ætlum að reyna að laga varnarleikinn töluvert. Fá á okkur fleiri mörk en í fyrra. Við viljum ekki að það komi niður á skemmtanagildi fótboltans. Boltanum verður haldið á grasinu töluvert en svo eru kraftur og geðveiki einkenni Fylkis. Við viljum halda í þau einkenni og það kemur einn og einn langur inn á milli. Við viljum mixa þetta aðeins upp," sagði Atli.

Kæmi á óvart ef þetta myndi enda í slagsmálum
Atli var ráðinn aðalþjálfari við hlið Ólafs Stígssonar eftir síðasta tímabil. Ólafur Ingi Skúlason er spilandi aðstoðarþjálfari.

Tveggja aðalþjálfara teymi í fótboltanum er nokkuð umdeilt en Atli hefur mikla trú á samstarfinu.

„Ég var strax mjög spenntur fyrir þessu. Lars og Heimir voru fyrstir til að gera þetta frægt á Íslandi en þetta er þekkt víðar. Lars og Tommy Söderberg voru samþjálfarar fyrir mörgum árum í Svíþjóð," sagði Atli.

„Margir þjálfarar eru í mikilli teymisvinnu þó það sé klárt að einn er titlaður aðalþjálfari og hinn aðstoðar. Ég held að þetta sé virk og góð samvinna hjá ansi mörgum."

En hvernig komast menn að samkomulagi ef þeir eru ósammála um til dæmis liðsval?

„Við ræðum þetta bara og reynum að komast að skynsamlegri niðurstöðu. Svo færum við bara rök fyrir því. Það kæmi mér á óvart ef þetta myndi enda í slagsmálum. Við erum þrír þokkalega skynsamir menn og getum komist að niðurstöðu í svona málum," segir Atli.

„Ég sé bara kostina við að vinna með þeim báðum. Óli Stígs hefur verið inni í þessu teymi í þrjú ár og þekkir það allt saman. Svo er Óli Skúla með þessa gríðarlegu leikmannareynslu og innsýn í fótboltann."

Atli gerir sér grein fyrir því að ef á móti blæs gæti komið umræða um að tveggja þjálfara kerfið sé ástæðan.

„Við erum með tveggja þjálfara teymi og það getur verið að við náum ekki árangri en það þarf ekki að vera því að kenna að við séum með þannig teymi. Það er fullt af öðrum hlutum í þessu."

Hlustaðu á viðtalið í spilaranum hér að neðan eða í gegnum Podcast forrit.
Atli Sveinn tekinn við stýrinu í Árbænum
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner