fös 24. apríl 2020 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mario Götze til Lazio?
Götze og liðsfélagi hans, Marco Reus.
Götze og liðsfélagi hans, Marco Reus.
Mynd: Getty Images
Að því er kemur fram í ítalska dagblaðinu La Gazzetta dello Sport þá er Lazio að skoða möguleikann á að fá Mario Götze í næsta félagskiptaglugga.

Götze er 27 ára gamall sóknarsinnaður miðjumaður, en samningur hans við Borussia Dortmund á að renna út í sumar.

Talið er að Götze sé tilbúinn að skipta um umhverfi fyrir næsta tímabil.

Götze hefur á þessu tímabili leikið 16 leiki í öllum keppnum og skorað þrjú mörk. Hann var eitt sinn talinn stórefnilegur og fór hann til Bayern 2013, en þar gengu hlutirnir ekki alveg að óskum. Það hafa þeir ekki heldur gert frá því hann kom aftur til Dortmund árið 2016.

Lazio var í öðru sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar, einu stigi frá Juventus, þegar hlé var gert á deildinni vegna kórónuveirufaraldursins. Bæði Lazio og Juventus eiga eftir að spila 12 leiki í deildinni.
Athugasemdir
banner
banner