fös 24. apríl 2020 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Móðir Neymar hætt með 22 ára gömlum kærastanum
Neymar er leikmaður Paris Saint-Germain og brasilíska landsliðsins.
Neymar er leikmaður Paris Saint-Germain og brasilíska landsliðsins.
Mynd: Getty Images
Móðir Neymar, Nadine Goncalves, hefur slitið sambandi sínu við hinn 22 ára gamla Tiago Ramos eftir að hún komst að því að Ramos hefði verið að hitta fjölda karlmanna áður en þau tóku saman.

Hún sagði frá nýjum kærasta sínum á Instagram á dögunum, en samkvæmt fjölmiðlum í Brasilíu er sambandið búið.

Ramos er 30 árum yngri en móðir Neymar og sex árum yngri en Neymar sjálfur. Ramos er módel, en hann spilar einnig tölvuleiki að atvinnu og dansar á samfélagsmiðlinum vinsæla TikTok.

Talið er að Ramos hafi verið í sambandi með Mauro, einkakokki Neymar, áður en hann hóf samband með móður leikmannsins. Því hefur líka verið haldið fram að hann hafi verið í sambandi með brasilíska leikaranum og grínistanum Carlinhos Maia.

Mynd af móður Neymar og Ramos má sjá hér að neðan.


View this post on Instagram

O inexplicável não se explica, se vive... ❤️

A post shared by Nadine Gonçalves (@nadine.goncalves) on


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner