Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 24. apríl 2020 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Það verði erfitt fyrir Juventus að landa Torres
Ferran Torres í leik með Valencia.
Ferran Torres í leik með Valencia.
Mynd: Getty Images
Hinn mjög svo áreiðanlegi Fabrizio Romano segir að Juventus hafi áhuga á Ferran Torres, tvítugum kantmanni Valencia á Spáni.

Romano segir að Ítalíumeistararnir hafi fylgst með Torres í mörg ár og félagið hafi nú þegar lýst yfir áhuga á honum. Það er 100 milljón evra riftunarverð í samningi Torres, en Juventus vonast til að komast að samkomulagi um lægra verð eða þá að bjóða leikmenn í staðinn til Valencia.

Það gæti hins vegar reynst erfitt fyrir Juventus að fá þennan efnilega kantmann.

Það er nefnilega þannig mál með vexti að þýsku félögin Borussia Dortmund og Bayern München eru líka mjög áhugasöm. Annað vandamál er það að Torres vill fá stórt hlutverk og hann er ekki tilbúinn að sitja mikið á bekknum. Það verður erfitt fyrir Juventus að lofa honum það með sinn sterka leikmannahóp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner