Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 24. apríl 2021 16:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Æfingaleikur: Rúnar Þór og Joey skoruðu tvennur gegn Fylki
Rúnar Þór
Rúnar Þór
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir 1 - 4 Keflavík
Mörk Keflavíkur: Joey Gibbs x2 og Rúnar Þór Sigurgeirsson x2
Mark Fylkis: Arnór Borg Guðjohnsen, víti

Keflavík sigraði Fylki með fjórum mörkum gegn einu í æfingaleik í dag. Þeir Joey Gibbs og Rúnar Þór Sigurgeirsson skoruðu báðir tvö mörk fyrir Keflvíkinga í leiknum.

Arnór Borg Guðjohnsen skoraði eina mark Fylkis í leiknum og kom það úr vítaspyrnu. Arnór kom Fylki í 1-0 á 18. mínútu. Rúnar Þór svaraði með mark beint úr hornspyrnu á 26. mínútu og Gibbs kom Keflavík yfir á 27. mín.

Nacho Heras sá rautt spjald hjá Keflvíkingum á 45. mín. Rúnar kom Keflavík í 1-3 á 55. mínútu með marki beint úr aukaspyrnu og Gibbs skoraði svo einnig úr aukaspyrnu á 58. mínútu.

Keflavík er spáð 10. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar og Fylki er spáð 8. sæti.

Hér að neðan má hlusta á upphitunarþátt Fótbolta.net um Pepsi Max-deildina

Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Útvarpsþátturinn - Stóri Pepsi Max þátturinn
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner