Víkingur Reykjavík hefur krækt í tvo markverði fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar. Nýlega fékk Aníta Dögg Guðmundsdóttir félagsskipti til félagsins frá FH.
Í gær tilkynnti svo félagið að því hafi borist liðsstyrkur frá Ameríku. Naya Lipkens mun berjast við Anítu um markvarðarstöðuna.
Í gær tilkynnti svo félagið að því hafi borist liðsstyrkur frá Ameríku. Naya Lipkens mun berjast við Anítu um markvarðarstöðuna.
Naya er 21 árs bandarískur markmaður sem spilar í bandaríska háskólaboltanum með sterku liði St. John´s University. Naya er hávaxinn og afar hæfileikaríkur markmaður.
„Það er Víkingum mikið gleðiefni að vera búin að tryggja tvo góða markmenn milli stanganna í sumar." segir í tilkynningu Víkings.
Athugasemdir