West Ham 0 - 1 Chelsea
0-1 Timo Werner ('43 )
Rautt spjald: Fabian Balbuena, West Ham ('81)
0-1 Timo Werner ('43 )
Rautt spjald: Fabian Balbuena, West Ham ('81)
West Ham United og Chelsea áttust við í ensku úrvalsdeildinni rétt í þessu. Leikurinn var gífurlega mikilvægur en bæði lið eru í harðri baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Chelsea var miklu meira með boltann til að byrja með en liðin skiptust á að sækja þó það hafi ekki komið neitt afgerandi færi til að byrjað með.
Það var hins vegar á markamínútunni góðu sem fyrsta mark leiksins kom. Eftir góða sókn hjá gestunum átti Ben Chilwell flotta fyrirgjöf á Timo Werner sem þakkaði fyrir sig og kláraði færið vel. Chelsea leiddi því leikinn með einu marki þegar flautað var til hálfleiks.
West Ham vildi fá vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum fyrir hendi en Chris Kavanagh, dómari leiksins, dæmdi réttilega enga vítaspyrnu.
Síðari hálfleikurinn var svipaður og sá fyrri. Markverðirnir vörðu allt sem á markið kom og það sá á þessum leik að gífurlega mikið var undir.
Timo Werner fékk algjört dauðafæri til að koma Chelsea í 2-0 forystu en honum brást bogalistinn.
Á 81. mínútu gerðist umdeilt atvik. Fabian Balbuena, varnarmaður West Ham, hreinsaði knöttinn burt en fylgdi vel á eftir með tökkunum sem höfnuðu beint á fæti Chilwell.
VAR skoðaði atvikið og ákvað að lokum að senda Chris Kavanagh, dómara leiksins, sjálfan til að skoða atvikið. Hann ákvað að rífa upp rauða spjaldið, David Moyes til mikillrar gremju.
Tíu leikmenn West Ham reyndu hvað þeir gátu að jafna metin en það gekk ekki eftir. Chelsea er nú með 58 stig í fjórða sæti deildarinnar. West Ham er í því fimmta með þremur stigum færra.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Arsenal | 34 | 24 | 5 | 5 | 82 | 26 | +56 | 77 |
2 | Liverpool | 34 | 22 | 8 | 4 | 75 | 34 | +41 | 74 |
3 | Man City | 32 | 22 | 7 | 3 | 76 | 32 | +44 | 73 |
4 | Aston Villa | 34 | 20 | 6 | 8 | 71 | 50 | +21 | 66 |
5 | Tottenham | 32 | 18 | 6 | 8 | 65 | 49 | +16 | 60 |
6 | Man Utd | 33 | 16 | 5 | 12 | 51 | 50 | +1 | 53 |
7 | Newcastle | 33 | 15 | 5 | 13 | 69 | 54 | +15 | 50 |
8 | West Ham | 34 | 13 | 9 | 12 | 54 | 63 | -9 | 48 |
9 | Chelsea | 32 | 13 | 8 | 11 | 61 | 57 | +4 | 47 |
10 | Bournemouth | 34 | 12 | 9 | 13 | 49 | 60 | -11 | 45 |
11 | Brighton | 32 | 11 | 11 | 10 | 52 | 50 | +2 | 44 |
12 | Wolves | 34 | 12 | 7 | 15 | 46 | 54 | -8 | 43 |
13 | Fulham | 34 | 12 | 6 | 16 | 50 | 54 | -4 | 42 |
14 | Crystal Palace | 34 | 10 | 9 | 15 | 44 | 56 | -12 | 39 |
15 | Brentford | 34 | 9 | 8 | 17 | 52 | 59 | -7 | 35 |
16 | Everton | 34 | 11 | 8 | 15 | 36 | 48 | -12 | 33 |
17 | Nott. Forest | 34 | 7 | 9 | 18 | 42 | 60 | -18 | 26 |
18 | Luton | 34 | 6 | 7 | 21 | 47 | 75 | -28 | 25 |
19 | Burnley | 34 | 5 | 8 | 21 | 37 | 69 | -32 | 23 |
20 | Sheffield Utd | 34 | 3 | 7 | 24 | 33 | 92 | -59 | 16 |
Athugasemdir