Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 24. apríl 2021 19:40
Aksentije Milisic
Gummi Tóta skoraði beint úr aukaspyrnu - Rúnar skoraði í tapi Cluj
Mynd: Getty Images
Guðmundur Þórarinsson var í eldlínunni hjá New York City í kvöld en liðið tók á móti Cincinatti í MLS-deildinni.

Leiknum lauk með öruggum 5-0 sigri New York og náði Guðmundur að skora í leiknum. Hann kom stöðunni í 3-0 með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu. Markið má sjá neðst í fréttinni.

Þetta var annar leikurinn í deildinni hjá New York en liðið tapaði í fyrstu umferðinni.

Í Rúmeníu mættust Cluj og CS Universitatea Craiova. Rúnar Már Sigurjónsson var í byrjunarliðinu hjá Cluj og lék hann 69 mínútur í dag.

Rúnar gerði sér lítið fyrir og skoraði fyrir Cluj en hann gerði eina mark liðsins í þessu 1-3 tapi á heimavelli. Cluj er einu stig á eftir FCSB sem er í efsta sætinu.

Rúnar Már varð fyrsti Íslendingurinn sem skorar í rúmensku deildinni.


Athugasemdir
banner
banner