Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 24. apríl 2021 12:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Klopp: Þið allir verðið að róa ykkur
Mynd: Getty Images
„Eigendur okkar gerðu mistök, ég hef sagt það nógu oft. Við erum andlit félagsins, við vissum ekkert um þessi áform ekki gleyma því," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, í viðtali fyrir leikinn gegn Newcastle í dag.

Staðan er 1-0 fyrir Liverpool í hálfleik. Mo Salah skoraði markið með föstu skoti úr teignum. Seinni hálfleikur er nýhafinn.

„Það var ekki Liverpool sem vildi fara í Ofurdeildina, það voru einstaklingar innan félagsins, það er mikilvægt að taka það með í dæmið."

„Þið allir [fjölmiðlamenn og gagnrýnendur] verðið að róa ykkur niður. Að tala um þetta allan daginn er að ná fólki úr jafnvægi. Við erum enn í heimsfaraldri, það er fólk úti án þess að vera með grímur. Verið rólegir," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner