Mateo Kovacic hefur leikið stórt hlutverk á leiktíðinni í liði Chelsea, fyrst undir stjórn Frank Lampard og nú undir stjórn Thomas Tuchel. Hann mun missa af leiknum gegn West Ham í dag og svo leiknum gegn sínum fyrrum félögum í Real Madrid.
Kovacic er að glíma við meiðsli og hefur Tuchel staðfest að króatíski miðjumaðurinn verður ekki með í fyrri leiknum gegn Real. Kovacic meiddist fyrir seinni leikinn gegn Porto og hefur verið frá síðan.

Kovacic hefur byrjað 27 af 37 leikjum liðsins til þessa í úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni. Líklegt verður að teljast að Jorginho og N'Golo Kante leysi miðjustöðurnar í fjarveru Kovacic.
Tuchel vonast til þess að Kovacic geti spilað gegn Fulham um næstu helgi.
Athugasemdir