Ed Woodward, varaformaður Manchester United, tilkynnti í vikunni að hann myndi yfirgefa félagið í lok árs eftir rúmlega 15 ár hjá félaginu. Woodward kom inn í félagið þegar Glazer fjölskyldan tók yfir 2005.
BBC greindi frá því að Woodward hafi ákveðið að hætta hjá Man Utd út af Ofurdeildinni. Woodward hafi tekið þessa ákvörðun í vetur þar sem hann vildi ekki sjá Rauðu djöflana taka þátt í keppninni.
Framkvæmdastjóri í ensku úrvalsdeildinni segir við Sky Sports að þessi umræða sé einfaldlega hlægileg.
„Hann tók þátt í þessu frá degi eitt," sagði framkvæmdastjórinn.
Woodward hefur verið mikilvægur í stjórnunarteymi Man Utd undanfarinn áratug en hann er þó ekki sérlega dáður af stórum hluta stuðningsmanna.
Athugasemdir