Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 24. apríl 2021 16:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spánn: Elche upp úr fallsæti
Mynd: EPA
Elche vann í dag 1-0 heimasigur á Levante í spænsku La Liga. Liðið komst með sigrinum upp úr fallsæti, í bili hið minnsta.

Það var Lucas Boye sem skoraði eina mark leiksins á 32. mínútu eftir undirbúning frá Tete Morente.

Þá varð 1-1 jafntefli þegar Valladolid og Cadiz mættust. Valladolid er í þriðja neðsta sæti en missti af tveimur stigum þegar Cadiz jafnaði á 64. mínútu eftir að Valladolid hafði leitt í 50 mínútur.

Valladolid 1 - 1 Cadiz
1-0 Oscar Plano ('14 )
1-1 Juan Cala ('64 )

Elche 1 - 0 Levante
1-0 Lucas Boye ('32 )
Athugasemdir
banner
banner