Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 24. maí 2021 17:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild kvenna: Völsungur með sterkan sigur gegn KH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Völsungur 2 - 0 KH
1-0 Hildur Anna Brynjarsdóttir
2-0 Samara De Freitas Martins Lino

Völsungur vann flottan sigur á KH í Húsavík í eina leik dagsins í 2. deild kvenna í dag.

Húsvíkingar voru sterkari í fyrri hálfleiknum og Hildur Anna Brynjarsdóttir kom þeim yfir áður en flautað var til hálfleiks. Staðan var 1-0 í leikhléi.

Gestirnir voru sterkari í seinni hálfleik og sýndi Mar Sanchez Celdran, markvörður Völsungs, flotta takta. Samara De Freitas Martins Lino skoraði seinna mark Völsungs og tryggði sigurinn í seinni hálfleiknum og lokatölur 2-0.

Frábær sigur hjá Völsungi sem er með sex stig í fjórða sæti. KH er í fimmta sæti með þrjú stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner