Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 24. maí 2021 18:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Stjörnunnar og KA: Brebels byrjar í fyrsta sinn
Sebastiaan Brebels er belgískur miðjumaður sem kom til KA fyrir tímabilið.
Sebastiaan Brebels er belgískur miðjumaður sem kom til KA fyrir tímabilið.
Mynd: KA
Emil Atlason snýr aftur í lið Stjörnunnara.
Emil Atlason snýr aftur í lið Stjörnunnara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Botnlið Stjörnunnar tekur á móti KA í athyglisverðum leik í Pepsi Max-deildinni klukkan 19:15. KA hefur farið mjög vel af stað en þeir töpuðu fyrir Víkingi í síðustu umferð.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.

Stjarnan tapaði 4-0 fyrir Breiðablik í síðustu umferð. Frá þeim leik gerir Þorvaldur Örlygsson tvær breytingar. Eyjólfur Héðinsson og Emil Atlason koma aftur inn í byrjunarliðið fyrir Elís Rafn Björnsson og Kristófer Konráðsson.

Haukur Heiðar Hauksson kemur aftur inn í byrjunarlið KA og Sebastiaan Brebels byrjar sinn fyrsta leik í sumar. Þá byrja tvíburarnir báðir, Nökkvi Þeyr og Þorri Mar. Daníel Hafsteinsson, Steinþór Freyr Þorsteinsson og Bjarni Aðalsteinsson detta úr byrjunarliðinu.

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
4. Óli Valur Ómarsson
7. Einar Karl Ingvarsson
9. Daníel Laxdal (f)
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
20. Eyjólfur Héðinsson
22. Emil Atlason
32. Tristan Freyr Ingólfsson

Byrjunarlið KA:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Haukur Heiðar Hauksson
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
8. Sebastiaan Brebels
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f)
14. Andri Fannar Stefánsson
16. Brynjar Ingi Bjarnason
21. Nökkvi Þeyr Þórisson
27. Þorri Mar Þórisson

Beinar textalýsingar
ÍA - Breiðablik 19:15
Keflavík - Valur 19:15
Stjarnan - KA 19:15
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner