Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 24. maí 2021 17:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dagný áfram í herbúðum West Ham
Dagný Brynjarsdóttir.
Dagný Brynjarsdóttir.
Mynd: Getty Images
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir verður áfram í herbúðum enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham.

West Ham hefur greint frá því hvaða leikmenn fara og hvaða leikmenn verða áfram hjá félaginu á næstu leiktíð.

Þar kemur fram að Dagný sé áfram samningsbundin félaginu. Hún gekk í raðir West Ham frá Selfossi í janúar og kom sterk inn hjá félaginu í enska boltanum.

Hún hjálpaði félaginu að halda sér uppi. Olli Harder, þjálfari West Ham, lítur til framtíðar.

„Við erum með mikilvægt sumar framundan og við ætlum að taka næsta skref í þróun þessa fótboltafélags," sagði Harder.

Sjá einnig:
Dagný í draumaheimi - Tommi skipaði henni að horfa á West Ham
Athugasemdir
banner
banner